
Ingólfsskáli
VeitingahúsVelkomin í Ingólfsskála
Við rætur Ingólfsfjalls stendur Ingólfsskáli Veitingahús. Hjá Ingólfsskála mætast hefðir og menningararfur í nútímanum og skapa einstaka matarupplifun þar sem boðið er upp á það besta sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða.

Innblástur úr íslenskri náttúru
Hjá Ingólfsskála sækjum við innblástur í íslenska náttúru og nýtum fersk hráefni úr nærumhverfi til þess að skapa ógleymanlega matarupplifun.

Arfleiðin er okkar stolt
Ingólfsskáli er nefndur í höfuðið á Ingólfi Arnarsyni sem nam land á Íslandi. Ingólfsskáli færir þér upplifun sem stígur út fyrir mörk nútímans og veitir innsýn í líf víkinganna með fáguðum en jafnframt menningarlegrum hætti.

Fjölskylduarfur
Hjá Ingólfsskála hefur íslensk gestrisni verið í hávegum höfð um kynslóðabil. Við erum stolt af því að deila fjölskylduarfi okkar í gegnum einstaka matarupplifun sem gefur frábært tækifæri til að kynnast íslenskum matarhefðum.
Hópar & Viðburðir
Í Ingólfsskála mætast nútímaleg matargerð og íslenskar hefðir. Þú færð hefðbundna íslenska rétti með því besta sem landið okkar hefur upp á bjóða.
Ef þú hefur áhuga á halda upp á sérstakt tilefni með aldagömlum hefðum þá getur Ingólfsskáli skapað ógleymanlega reynslu fyrir þig og þína gesti. Veislusalurinn okkar getur tekið á móti 250 manns og við erum auk þess með annan sal sem rýmir 180.
Salurinn okkar er tilvalinn fyrir ráðstefnur, fundi og aðra atburði þar sem við bjóðum upp á nýjustu tækni fyrir hljóð og mynd, tilvalið fyrir allskyns kynningar.
Eldhúsið okkar getur framreitt framúrskarandi rétti úr ferskum hráefnum í hæsta gæðaflokki, annað hvort af matseðli okkar eða með tilliti til persónulegra óska. Það er auðvitað nóg af drykkjum til að svala þorstanum og við mælum alltaf með því að fagna og skála með einu skoti af brennivíni.

@ingolfsskali
Staðsetning
Ingólfsskáli er staðsettur í Efstalandi, 816 Ölfusi, við rætur Ingólfsfjalls. Frá Reykjavík tekur um það bil 40 mínútur að aka að Ingólfsskála og frá Selfossi er aðeins tíu mínútna akstur.
Title | Address | Description |
---|---|---|
Ingólfsskáli | Efstaland, Ölfus, Iceland |

Netfang
ingolfsskali@ingolfsskali.is

Sími
+354 662 3400

Heimilisfang
Efstalandi, 861 Ölfusi
Hafa samband
Borðpantanir
*Athugið að nauðsynlegt er að panta borð fyrirfram

Opening hours:
Monday-Thursday: 18:00-22:00.*
*Please note that a reservation must be made
Kennitala: 4401131-1090
VSK:122580